Sunnudaginn 20. september fara okkar menn til eyja í næsta leik úrslitakeppni Bestu deildarinnar. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli kl. 16:00.
3 stig heim takk fyrir. Áfram Valur! 🦅
Fyrsti leikur í úrslitakeppni Bestu deildar kvenna er heimaleikur gegn Þór/KA, laugardaginn 19. september kl. 16:00 á N1 vellinum.
Allir leikirnir sem eru eftir eru úrslitaleikir og það má búast við mikilli spennu. Við hvetjum alla Valsara til að fjölmenna á völlinn og hvetja
stelpurnar áfram í þeirri hörðu baráttu sem er framundan. Að sjálfsögðu verður sjoppan góða opin, gómsætir Valsborgarar á grillinu og ískaldur á krana fyrir þau sem eru þyrst. Mætum í rauðu, verum með læti og hirðum þessi 3 stig!
Sjáumst á laugardag! 🦅
4. flokkur drengja voru heiðraðir fyrir leik Vals og Þórs í bestu deildinni sl. sunnudag, en þeir unnu Dana Cup fyrr í sumar sem er eitt stærsta alþjóðlega yngri flokka mót í heimi.
Stórkoslegur árangur okkar stráka og þeir áttu sannarlega skilið standandi lófatak úr stúkunni.
Guðmundur Brynjar Wehmeier spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki á sunnudaginn þegar hann kom inn á gegn Þór. Hann varð þá þriðji yngsti leikmaður efstu deildar en á leikdegi var hann 14 ára og 232 daga gamall.
Guðmundur hefur raðað inn mörkum í yngri flokkum Vals og virkilega gaman að sjá hann blómstra í rauðu treyjunni.
Gareth Owen, yfirmaður knattspyrnumála Vals, er ánægður fyrir hönd Guðmundar: "Við erum mjög stolt af Gumma og það var algjörlega frábært að sjá hann koma inn á
Úrslitakeppni Bestu deildarinnar er að hefjast. Fyrsti leikur er heimaleikur gegn Þór, sunnudaginn 13. september kl. 14:00.
Fjölmennum á völlinn og hvetjum okkar menn. Sjoppan góða verður opin og að sjálfsögðu verða gómsætir Valsborgarar á grillinu og ískaldur á krana.
Lísa Ingólfsdóttir hefur verið valin í U17 landsliðið fyrir æfingamót í Portúgal dagana 8. - 14. september. Liðið mætti Wales í gær, Portúgal á föstudag 11. sept og svo Danmörku mánudaginn 14. sept.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, landsliðsþjálfari U15 landsliðs kvenna, hefur svo valið hóp sem æfir saman dagana 22.-24. september. Þar á Valur þrjá glæsilega fulltrúa en það eru Freyja Kjartansdóttir, Rebekka Rós Sveinsdóttir og Ylfa Margrét Fjalarsdóttir.
Takk Sóley! 🦅
Sóley Edda Ingadóttir er að ganga í raðir Norska félagsins Molde.
Sóley gekk til liðs við Val í desember 2024 og hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu síðan þrátt fyrir ungan aldur, en hún er fædd árið 2008 og því aðeins 18 ára.
Hún á einnig að baki 35 leiki með yngri landsliðum Íslands og fór nú í sumar með U19 landsliðinu á EM.
Þegar Sóley samdi við Val var lagt upp með 3 ára plan um að þróa hennar leik áfram og hún færi svo í atvinnumennsku erlendis.
Síðasti leikur fyrir skiptingu í Bestu deild kvenna fer fram á sunnudag þegar okkar konur mæta Grindavík/Njarðvík a útivelli. Leikurinn fer fram á JBÓ vellinum í Njarðvík kl. 16:30.
Sjáumst á sunnudag! 🦅
Það er Ljósanótt í Keflavík sama kvöld, svo það er borðleggjandi að gera sér ferð, skella sér á leikinn og skemmta sér svo frameftir kvöldi í bænum. Hirða 3 stig og mála bæinn rauðan (ekki bókstaflega þó!).
Sjáumst á laugardag! 🦅
Bræðurnir Stefan og Novak Tufegdzic eru gengnir til liðs við sænska stórliðið Malmö FF frá Val. Stefan er 16 ára, fæddur árið 2010, og Novak er 14 ára, fæddur árið 2012.
Báðir hafa þeir verið afar öflugir og efnilegir leikmenn í yngri flokkum Vals
undanfarin ár og í sumar tóku þeir sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins.
Novak skrifaði jafnframt nafn sitt í sögubækurnar þegar hann var í byrjunarliði Vals gegn Fram í Bestu deildinni í sumar og varð þar með yngsti leikmaður í sögu efstu deildar karla á Íslandi.
Það verður sannkölluð fótboltaveisla að Hlíðarenda sunnudaginn 30. ágúst!
Meistaraflokkur kvenna fær FH í heimsókn kl. 13:00 og Meistaraflokkur karla tekur svo á móti ÍA kl. 19:15.
Þetta er fullkomið tækifæri fyrir alla Valsara til að gera sér glaðan dag og mæta galvösk á báða leiki. Besta sjoppa landsins verður auðvitað opin, grillaðir borgarar og ískaldur á krana.
Ekki klikka á þessu. Sjáumst á sunnudag! 🦅
Það er stutt að fara svo það er engin ástæða til annars en að fjölmenna á leikinn og láta vel í sér heyra til að hvetja okkar menn. Mætum í rauðu, verum hávær og höfum gaman.
Sjáumst á sunnudag! 🦅