Ég verð að hrósa þeim hjónum fyrir fjármálasnilli, fyrst kauprétturinn og nú tekst þeim að selja hlut í félagi sem hefur verið rekið í tapi og með neikvætt eigið fé mánuði áður en það verður gjaldþrota. dv.is/frettir/2026/11/12/eig…
18
Það var nú ekki lítill lúðrablásturinn í kringum þessa húsleit þegar starfsmönnum Eftirlitsstofnun EFTA grunaði að Lyfjaval væri með einokun í rekstri bílaapóteka.
Nú rúmum tveimur árum síðar hafa embættismennirnir komist að niðurstöðu. visir.is/g/20262960658d
17
450
TryggviG retweeted
1/10
Ríkið gefur út stærstan hluta námsefnis í grunnskólum og afhendir það án endurgjalds. Ísland er eitt Norðurlanda með slíka miðstýrða ríkisútgáfu námsgagna 🧵📚
Af hverju sagði Daði á Alþingi í síðustu viku að öll gögn málsins væru kominn fram? Ég hélt að það væri bannað að plata í þessu starfi (eða gildir það bara um starf forsætisráðherra)? - mbl.is mbl.is/frettir/innlent/2026/… via @mblfrettir
TryggviG retweeted
Þorgerður Katrín telur það alvarlegra að Ólafur Ragnar, fyrrverandi forseti, vekji athygli á að Rússland sem er stærsta ríkið á Norðurslóðum hafi birt nýja Norðurslóðastefnu en að Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri stjórnarflokks, hafi hvatt forseta Frakklands til að undirbúa kjarnorkustríð.
Sjálfur tel ég dómgreind Þorgerðar Katrínar það alvarlegasta í þessu máli.
Í þessum orðum Daða kristallast þátttaka Viðreisnar í þessari ríkisstjórn. Þau fá að vera ráðherrar en Flokkur Fólksins ræður hvaða mál eru sett á dagskrá og samþykkt visir.is/g/20262956134d
3
196
Ef það þarf alltaf að tönglast á því að ríkisstjórnin sé sterk eða samheldin að þá er hún er hvorugt
11
174
Sumir telja það náttúrulögmálinu að ríki og sveitarfélög geti bara þanist út visir.is/g/20262954571d
4
69
TryggviG retweeted
Samfylkingunni þótti það EKKERT vandamál að standa í pontu þingsins fyrr á árinu og "gera heilan trúarhóp tortryggilegan".
Það er greinilega ekki sama hvort þú ert múslími eða kristinn 🫡
Sigmundur Ernir þrumaði yfir allri kaþólsku kirkjunni fyrir orð prestsins-sem þó voru tekin úr samhengi.
Ása Berglind fór af límingunum í vikunni fyrir orð Elliða Vignis um múslíma og að þeir væru að valda vandræðum þar sem þeir eru margir í vestrænum samfélögum.
Þetta fólk, er ekki HÆFT til að vera á þingi sem "fulltrúar " okkar.
Tvískinnungurinn er ALGER.
TryggviG retweeted
Gríman hjá RÚV er löngu fallin, fréttamenn þykjast ekki einu sinni vera hlutlausir.
TryggviG retweeted
Mín kenning er þessi: Stóran hluta innanflokksmeina Viðreisnar má rekja til að það þorir enginn að benda á hið augljósa. Þorgerður Katrín gjörsamlega klúðraði lang stærsta baráttumáli flokksins sem er innganga í ESB. Hún fór fram algjörlega sóló með atkvæðagreiðslu án þess að vera búin að kanna stuðning við málið utan eigin búbblu þótt það mætti vera ljóst og reynslan 2010-15 sýndi að aðlögun og innganga gæti aldrei heppnast án víðtækrar samstöðu hagaðila. Það var ekkert ákall í samfélaginu um þessa kosningu og þegar á hólminn kom var stuðningurinn lítill. Þegar ljóst var að lítill stuðningur var við málið var reynt að halda fram að þetta væru bara könnunarviðræður, það stóðst auðvitað enga skoðun, umsókn að ríkjabandalagi er viljayfirlýsing um inngöngu.
Nei-hliðin var miklu betur undirbúin þegar boðað var til kosninganna þar var stór hópur fólks sem hefur verið að spá í þessi mál frá því amk 2009 og var strax kominn fram á ritvöllinn. Þrátt fyrir að engin ný rök hafi komið fram í sumar átti já-hliðin fá svör. Viðbrögð Þorgerðar var að hlaupa í felur og tala til þjóðarinnar í gegnum erlenda fjölmiðla, oft með skætingi. Samt var það Þorgerður sem valdi tímasetningu kosninganna og spurninguna. Hún hafði flest spil á hendi en hafði ekki haft fyrir því að kanna hvað spil það voru.
Viðbrögðin við úrslitum kosninganna hafa síðan verið barnaleg, brigsl um erlend ítök, svindl og að þjóðin sé vitlaus. Ekki bætir úr skák að Þorgerður upp á sitt einsdæmi sendir ESB bréf um að atkvæðagreiðslan var öll í plati og staða Íslands sem umsóknarríki er óbreytt, loks er reynt að keyra aðlögunina áfram með leikritinu í kringum bókun 35.
Í stjórnmálaflokki með sterka lýðræðislega hefð og flokksstofnanir væri þetta rætt en Viðreisn virðist einkennast af klíkuræði þar sem topparnir klappa hverjir öðrum á bakið og ef aðrir sjá ekki snilldina er það bara verst fyrir þá sjálfa.
TryggviG retweeted
Þessi samningur er væntanlega gerður í þeim tilgangi að tryggja Viðreisn óbreyttar greiðslur frá Alþingi og um leið óbreyttum fjölda starfsmanna fyrir þingflokkinn - þrátt fyrir að einn þingmaður hafi yfirgefið flokkinn. Það er alltaf þetta með sérhagsmuni umfram almannahagsmuni, eða hvernig sem það var.
mbl.is/frettir/innlent/2026/…
Viðreisn ætti að geta fengið ráðleggingar hjá Samfylkingunni um góðan vinnustaðasálfræðing- mbl.is mbl.is/frettir/innlent/2026/… via @mblfrettir
3
25
805
Tek þetta til baka. Að sjálfsögðu útskýrði hann þetta vel og benti á sem allir sjá að þrátt fyrir allt sjálfshólið, yfirlætið og selfímyndirnar er keisarinn nakinn
Ég hefði talið það sjálfsögð kurteisi við þá sem kusu hann og Viðreisn að greina frá ástæðu þess að hættir í flokknum - mbl.is mbl.is/frettir/innlent/2026/… via @mblfrettir
11
208
Ég hefði talið það sjálfsögð kurteisi við þá sem kusu hann og Viðreisn að greina frá ástæðu þess að hættir í flokknum - mbl.is mbl.is/frettir/innlent/2026/… via @mblfrettir
TryggviG retweeted
Hvað með að banna ekki au-pair sem koma hingað í tímabundna vinnu en banna frekar útlendinga sem koma hingað gagngert til að vinna ekki?
mbl.is mbl.is/frettir/innlent/2026/… via @mblfrettir
Að sjálfsögðu eru allir stjórnarmenn Jafnréttissjóðs konur? stjornarradid.is/efst-a-baug…
TryggviG retweeted
Ríkisútvarpið sá ástæðu fyrr á þessu ári til að fjalla um skilti með áróðri gegn Bandaríkjunum í Íran en hefur ekki séð ástæðu til að minnast á skiltin með utanríkisráðherra Íslands
TryggviG retweeted
Ég hélt að þetta væri ekki raunveruleg mynd en með aðstoð gervigreindar fékk ég þetta staðfest.
Ætla rétt að vona að utanríkisráðherra bregðist við og líti inn á við í leiðinni.

























