Takk fyrir að leggja verulega í púkkið.
Leyfum svona einstaklingum að blómstra og stækka, mikið leggja þeir til samneyslunnar.
Þeir búa til verðmæti og skapa störf fyrir aðra, setjum ekki stein í götu þeirra.
1
10
271
ÞKG sagði áðan þegar spurt var um hvers vegna engin starfslýsing hefði verið gerð þegar skattgreiðendur greiddu 14.000.000kr fyrir ESB vinnu Heiðu Kristínar.
Ráðherra svaraði svona:
„Ráðin án nokkurrar starfslýsingar“. Það var ekki þannig.
Hvað sagði Heiða Kristín sjálf um starfslýsingu sína:
„Þetta er alltaf smá óvissuferð þegar maður leggur af stað í kosningabaráttu og mín starfslýsing var engin þannig að þetta var bara svolítið spurning um að djöflast í alls konar“.
Hér er um grafalvarlegt mál að ræða. Almennafé ausið í málastað ráðherra og ráðherrann sakar menn um dylgjur og aðdróttanir fyrir að benda ósamræmi Viðreisnar í því. Þetta mál þarf að brjóta til mergjar.
Brottfarastöð í uppnámi.
1. Brottfararstöð átti að opna 12. júní 2026.
2. Frestað 1. desember 2026.
3. Frestað til 1. desember 2027.
Tæplega 18 mánaða seinkun !
Enn er engin trygging fyrir því að stöðin verði komin í gagnið eftir eitt ár, tvö ár eða lengur.
Við (Sjálfstæðismenn) vildu halda gæsluvarðhaldsheimildum fyrir erfiðustu tilvikin opnum, þegar ekki er hægt að vista einstaklinga með öðrum á brottfararstöð. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum sammála. Ekki var hlustað.
a) Engin trygging fyrir húsnæði.
b) Engin trygging fyrir opnun.
c) Og verið að afnema nauðsynlegar heimildir lögreglu.
Þetta mál er klúður frá A-Ö. Þar sem umbúðir og offors hafa borið ábyrg og góð vinnubrögð ofurliði.
Hverju hefur gagnrýnislaus skjávæðing íslenskra skóla skilað?
---
Í átta löndum jókst hlutfall nemenda sem fengu upplýsingatæknikennslu úr 44% í 63% á árunum 2013–2023. Á sama tíma fækkaði þeim sem náðu lágmarksviðmiðum í stafrænu læsi úr 72% í 61%.
Bandarísk rannsókn sýndi jafnframt að drengir vörðu um 450 klukkustundum meira á ári við skjái en stúlkur. Samt stóðu stúlkur sig betur í alþjóðlegum mælingum á stafrænu læsi!
---
Og hvernig stöndum við Íslendingar í skapandi hugsun?
35% drengja nær ekki grunnfærni hvað skapandi hugsun varðar í PISA.
Þetta ætti að vekja okkur til umhugsunar.
---
Þekking er uppspretta gagnrýninnar hugsunar og nýsköpunar. Gagnrýnin hugsun og nýsköpun verða ekki til í tómarúmi.
Án þekkingar er erfitt að meta upplýsingar, tengja hugmyndir eða skapa eitthvað nýtt.
---
Við þurfum að hverfa frá stefnu um skjávæðingu og byggja upp raunverulega grunnþekkingu nemenda, þekkingu sem hægt er að nota til að mynda sér upplýstar og rökstudd viðhorf og skoðanir.
---
Í bandarískri könnun frá 2025 meðal 1.000 ráðningarstjóra töldu 72% að X-kynslóðin (fædd 1965–1980) félli betur að ráðningaróskum þeirra, en aðeins 54% sögðu það sama um Z-kynslóðina (fædd 1997–2012).
X-kyslóðin , betri að rýna til gagns, sterkari dómgreind, betri samskiptafærni og meiri grunnþekkingu.
Athyglisvert að kynslóðin sem ólst upp án skjávæðingar skóla kemur betur út í þessu mati.
---
Heimildir:
1. Jared Cooney Horvath – um stafrænt læsi, þekkingu og menntun.
2. IEA – ICILS 2013, 2018 og 2023.
3. Common Sense Media – The Common Sense Census, 2021.
4. OECD – PISA 2022 Results, Volume III: Creative Minds, Creative Schools, Ísland, 2024.
5. Resume Genius (2025), Unfiltered Hiring Insights Report.
Fyrir ári sagði þingmaðurinn að hann hefði fengið 16-18 milljónir króna fyrir bátinn en umsamið verð hefði síðan verið í reynd 255 þúsund kr. sem er tilgreint í riftunarsamningnum.
Hvað er hér í gangi í boði Kristrúnar Frostadóttur?
Pawel á Rás 2 (17.11.2026) í morgun um brotthvarf Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn:
,,Þá sendir hann (Ingvar) tilkynningu til forseta Alþingis og síðan byrjar þetta að hvíslast um gangana og berst til mín sem sagt með þeim hætti, og reyndar til Þorgerðar Katrínar með sama hætti…“
Hvað er þingflokksformaður Viðreisnar að segja hér? Að þetta byrji að: ,,Hvíslast um gangana“ !
---
Ingvar segir forseta Alþingsins frá vistaskiptum sínum, um það ríkir auðvitað trúnaður.
Er þetta boðlegt ef þetta er eins og það virðist koma af kúnni?
Þetta sagði Daði (sjá mynd) þegar Jón Gnarr gafst upp á því að Viðreisn myndi standa við kosningaloforð sín.
Nú hefur Ingvar Þóroddsson horfst í augu við eigin sannfæringu og sýnt það hugrekki að fylgja henni, hrós á hann.
Staðan er 33 stjórnarþingmenn og 28 stjórnarandstöðuþingmenn og 2 möguleg sveifluatkvæði.
Guðmundur Ingi Kristinsson, Jón Gnarr, Ingvar Þóroddsson... hver er næstur?
33
1,570
Allt á réttri leið undir styrkri Verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur.
Verðbólga veður uppi og er skatturinn sem enginn samþykkti og enginn vill.
Atvinnuleysi rýkur upp en það kostar samfélagið hrikalega mikið, hirðir sjálfsvirðingu fólks, tilganginn og trúna þess á framtíðina.
Trump rukkar við Miklagljúfur.
Hanna Katrín vill rukka við Gullfoss.
Sama trú á að ferðamenn borgi bara meira. En þeir geta kosið með fótunum eins og dæmin sanna.
Verður næsta slagorð Viðreisnar „Make Gullfoss Expensive Again“?
10
384
Í samfélagi ofgnóttar gleymist oft hver grunnurinn er og mörgu tekið sem sjálfgefnu og óendanlegu.
Það þarf að vinna fyrir þessum miklu lífsgæðum, þau verða ekki til í tómarúmi.
Grunnur* allra lífsgæða er svo hinn sami hvort sem það er td:
Kalt vatn
Heitt vatn
Öll fæða
Rafmagn
Samgöngur
Skjól/húsnæði
*ORKA.
Við eru algerlega háð orku og þess vegna er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að vera sjálfum okkur næg og sækja jarðefnaeldsneyti í Drekasvæðið ef hægt er.
Faraldurinn leyfði okkur að glugga inn í mannlegt eðli sem sumir afneita.
Við hömstruðum bóluefni á meðan
3- heimurinn hirti molana ef einhverjir voru.
Okkar allra besta fólk þagði og þáði inngjöf, jafnvel nr 2 og 3, áður en 3 heimurinn fékk nasaþefinn af bóluefnunum.
Það er svo erfitt að vera samkvæmur sjálfum sér.
Um 13.000 einstaklingar á milli 15 og 25 ára eru í basli með bókstafina, kunna ekki að lesa.
Enn fleiri ekki með grunnfærni í lesskilningi.
—-
Það að kunna ekki að lesa skerðir td sjálfsmynd, lífsgæði og sjálfstraust alla daga, alltaf.
Daði í kröppum dansi og orð hans frá 19.10.2026:
,,Ég held að túlkun háttv. þingmanns að forstjóri Landsvirkjunar hafi hrökklast úr starfi sé auðvitað úr lausu lofti gripin”
Síðan þá hefur ráðherrann verið afhjúpaður.
—-
Í minnisblaði forstjóra Landsvirkjunar kemur fram í óbeinni tilvitnun:
Bein afskipti hafi verið af daglegum rekstri.
Störf stjórnar fara í auknum mæli fram utan stjórnarfunda þrátt fyrir að starfsreglur stjórnar Landsvirkjunar segi að störf hennar eigi að fara fram á stjórnarfundum
Einnig kemur fram að óformleg samskipti ráðherra og nefndarinnar hafi aukist sem eykur hættuna á pólitískum afskiptum.
Þá eru dæmi um að ráðuneytið hafi frumkvæði að fundum með stjórn um málefni Landsvirkjunar, þar sem forstjóri fær ekki fundarboð.
—-
Er þetta eðlilegt starfsumhverfi fyrir forstjóra þessa mikilvæga fyrirtækis?
Er í lagi að pólítísk afskipti (spilling) hafi aukist?
Kallast þetta ekki að hrökklast úr starfi?
Er það boðlegt að ráðherra segi ekki satt í pontu Alþingis?
Örlítil jarðtenging!
ALLT tal um einkunnakvarða grunnskólans er tilgangslaust á meðan ekkert annað breytist (samræmdpróf og aðalnámskrá).
Það breytir engu hvaða tákn eru notuð á meðan ekkert samræmi er í einkunnagjöf.
Jafnræði nemenda er ekkert og sanngirnin engin við lok grunnskóla.
Ef almennileg samræmd próf væru úr gæða aðalnámskrá kæmumst við út út þessu svartholi fáránleikans.
2
17
555












