Í dag fór ég á smá vinnufund í heimahögunum á Austurlandi og var kynntur sem sérfræðingur af sunnan. Ætli ég sé ekki að verða borgarbarn eftir allt saman.
4
26
2,494
Eftir rúma viku í litlu Danmörku hef ég styrkst mikið í þeirri skoðun minni að það besta sem komið hefur frá Danaveldi er remúlaði sósan.
1
2
Mómentið þegar börnin eru orðin öskrandi svöng og þú áttar þig á því að grjónagrauturinn sem þú keyptir til að eiga um helgina fyrir þetta móment er ekki grjónagrautur heldur kotasæla
1
57
Braut þriggja ára gamalt áramótaheit þegar ég þrælaði í mig einum Senseo bolla, allt er hey í harðindum
5
Fallega gert af Liverpool að gefa Villarreal smá von áður en að þeir keyrðu yfir þá #fotboltinet
4
Fimm ára sonur minn sá mann stíga á hrífu í teiknimynd um daginn og fannst það mjög áhugavert að vita hvernig þetta virkaði. Hann er með glóðurauga í dag
2
180
Þessir Vetrarólympíuleikar eru algjör veisla núna er ég til dæmis búinn að vera í klukkutíma að horfa á æsispennandi keppni á snjóþotum
1
5
Ægilega er alltaf gott að geta fundið annan blóraböggul þegar maður sjálfur búinn að klúðra málunum
4
Þetta grímu dæmi er svo þreytt ég var ný byrjaður að þekkja fólk aftur án grímu svo skellur þetta á og ég er aftur á byrjunarreit
1
6






