Vil þakka Viðreisn fyrir að halda uppi mannúðlegum sjónarmiðum og semja lög sem hleypa morðingjum frjálsum ferða sinna eftir að hafa afplánað 1/3 dómsins. Endurkomubannið ætti að kenna þeim dýrmæta lexíu.
Gleymum svo ekki tveggja þrepa refsikerfinu þar sem Íslendingar sitja lengur.
Samfélagið okkar er komið á slæman stað þegar dómsmálaráðherra og fangelsismálastjóri stæra sig af því að losa um pláss sem erlendir fangar fylla, svo innlendir fangar geti loksins fengið þau í staðinn.
Aldrei má ráðast að rót vandans. Þess í stað eru plástrar settir á vandamálið til að halda partíinu gangandi.
Veit ekki betur en það sé verið að búa til tvískipt refsikerfi. Þú færð að dúsa inni ef þú ert Íslendingur, en ef þú ert erlendur brotamaður virðist lausnin vera frjáls för.
Hvet ykkur til að lesa pistilinn á Vísi aftur. Virkja þarf þær heimildir sem Schengen-reglur bjóða upp á. Mörg Schengen-ríki, þar á meðal Svíþjóð, beita nú þegar tímabundnu innra landamæraeftirliti vegna skipulagðrar glæpastarfsemi og ólöglegra fólksflutninga. Ísland ætti að gera slíkt hið sama.
Til lengri tíma þarf meira en neyðarráðstafanir. Samfélagsleg samheldni er eitt dýrmætasta verðmæti Íslands. Opin landamærastefna sem hefur ríkt krefst endurskoðunar.
Samfélagið okkar er komið á slæman stað þegar dómsmálaráðherra og fangelsismálastjóri stæra sig af því að losa um pláss sem erlendir fangar fylla, svo innlendir fangar geti loksins fengið þau í staðinn.
Aldrei má ráðast að rót vandans. Þess í stað eru plástrar settir á vandamálið til að halda partíinu gangandi.
Veit ekki betur en það sé verið að búa til tvískipt refsikerfi. Þú færð að dúsa inni ef þú ert Íslendingur, en ef þú ert erlendur brotamaður virðist lausnin vera frjáls för.
Hvet ykkur til að lesa pistilinn á Vísi aftur. Virkja þarf þær heimildir sem Schengen-reglur bjóða upp á. Mörg Schengen-ríki, þar á meðal Svíþjóð, beita nú þegar tímabundnu innra landamæraeftirliti vegna skipulagðrar glæpastarfsemi og ólöglegra fólksflutninga. Ísland ætti að gera slíkt hið sama.
Til lengri tíma þarf meira en neyðarráðstafanir. Samfélagsleg samheldni er eitt dýrmætasta verðmæti Íslands. Opin landamærastefna sem hefur ríkt krefst endurskoðunar.
Dagur 1 af 100 í þessu verkefni og báknið er STRAX stækkað hjá nýjum meirihluta í borginni
2
75
5,179
Sami landlæknir og tók þessa ákvörðun, sem virðist vantreysta einkaframtakinu og hamla nýsköpun í heilbrigðisgeiranum, er nú ráðherra yfir þessum málaflokki.
Reyndar mætti segja það sama um ríkisstjórnina í heild varðandi traust til einkaframtaksins, eins og sást þegar ASÍ var styrkt til verðlagseftirlits.
Aðrar þjóðir virðast sjá ljósið og þurfum við að horfa í meira mæli til Svíþjóðar þegar kemur að lausnum í heilbrigðismálum (sjá St. Göran) og fleiri málaflokkum.
Læt áhugaverða frétt WSJ um Svíþjóð fylgja.
1
65
1,872
„Var Brynjar Leó Hjartarson dæmdur í þriggja ára fangelsi.“
Þessi dómur er lítilsvirðing við fórnarlambið. Þrjú ár fyrir endurteknar nauðganir á 14 ára barni sem var í forsjá ríkisins, að stuðla að stroki úr barnavernd og notfæra sér fíkn fórnarlambsins. Maður sem er með fjóra dóma að baki og á skilorði.
Er ekki kominn tími til að hækka lágmarksrefsingu fyrir nauðgun á barni?
Fyrir utan hið augljósa að M er með stefnu og leggur áherslu á alla þessa mikilvægu málaflokka þá er eðlilegt að ræða þessi menningarmál og margir foreldrar sem velta þeim fyrir sér.
Nú væri gaman að fá að vita af hverju þið viljið ekki ræða menningarmálin og styður þú @ViggoBakari við óafturkræfar kynþroskabælandi meðferðir á börnum undir 18 ára aldri og að félagasamtök fái að sjá um hinsegin fræðslu í leik- og grunnskólum?
Í Evrópusambandinu borgar þú skatta sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins notar síðan til að gera lítið úr þér og líkja þér við álhatt og flatarjarðarsinna fyrir það eitt að gagnrýna hvert Evrópa stefnir
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ þorir ekki að standa á sínu þegar það kemur að erfiðustu spurningunum í kosningaprófinu
Af hverju getum við ekki fengið forsætisráðherra sem hugsar minna um WEF og meira um hagsmuni Íslands?
Telur þú að leigusalar (60% einstaklingar nota bene) séu vondir og okri á fólki og séu ekki að rukka eftir markaðsvirði (sem borgin sjálf er að brengla með því að halda lóðaframboði niðri og keppast um leiguíbúðir við almenning)?
@sjalfstaedis: Já
Skælbrosandi á meðan ungt fólk kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn og fyrirtæki berjast í bökkum í hávaxtaumhverfi sem valkyrjurnar sjálfar viðhalda. 8.25% stýrivextir út árið spáð af Landsbanka.
Sjálfu-væðing þessarar ríkisstjórnar verður ritgerðarefni hjá stjórnmálafræðinemum á komandi árum.
landsbankinn.is/uploads/docu…
Gervigreindin og vélmennin eru að koma og ég held að Ísland sé í stakk búið til að nýta sér þá byltingu betur en flest önnur ríki. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að íslenskt hugvit, kjarkur og dugnaður sem hafa þróast í gegnum aldirnar á klettinum okkar í ballarhafi sé það sem sker okkur úr.
Þessi umbylting mun leysa úr læðingi eitt mesta hagvaxtarskeið í sögu landsins ef rétt er haldið á spilunum. Lykilinn í allri velsæld á Íslandi er hagvöxtur á mann, sem hefur því miður setið eftir á undanförnum árum. (Engar áhyggjur, ég veit að hluti af því er stytting vinnuviku sem leiddi til þess að við þurftum að reiða okkur á erlent vinnuafl til að fylla upp í skarðið)
Nýverið birti ríkisstjórnin atvinnustefnu til 10 ára og 2 ára aðgerðaráætlun. Vissulega var snert á gervigreind í opinberri þjónustu (efast samt um að hagræðingar muni fylgja þessu af núverandi ríkisstjórn) en ekki nærri því af þeim slagkrafti sem maður vonaðist til að sjá, og hefur maður áhyggjur af því að við verðum ekki í fararbroddi þegar kemur að innleiðingu á þessum lausnum.
Menn eins og @dadikr hafa bent á að við séum að sofa á verðinum, ásamt hópi sérfræðinga hjá HR sem hafa gagnrýnt áform um uppbyggingu íslensks mállíkans í samstarfi við einkafyrirtæki í stað þess að byggja upp lausn með opnu leyfi. Að auki var ekkert snert á breytingum sem þessi bylting mun hafa á vinnumarkaðinn og innflytjendastefnu.
Gervigreindarvélmenni, eins og þau frá Figure (einnig mjög þróuð eintök sem eru að birtast úr Asíu), munu vera leikbreytir þegar kemur að því að mæta eftirspurn eftir vinnuafli hér á Íslandi og munu að öllum líkindum breyta dýnamíkinni á vinnumarkaði og viðskiptamódelum. Þar að auki mun að einhverju leyti fylgja minna álag á samfélagslega innviði sem ella kæmi með þessum breytingum, án þess að fórna hagvexti og lífsgæðum.
Svo er það gervigreindin sjálf sem mun gera einstaklingum kleift að afkasta á við marga. Allt í einu mun smæð Íslands ekki vera jafn hamlandi þegar kemur að uppbyggingu og vexti fyrirtækja.
Þess vegna er svo mikilvægt að þessi málaflokkur sé efstur á baugi. Það er ástæða fyrir því að öll stærstu gervigreindarfyrirtækin eru í USA og Asíu en Evrópa er eftirá (USA innovates, China imitates, EU regulates), og því mikilvægt að við förum ekki sömu leið og ESB þegar kemur að íþyngjandi regluverki og kvöðum á þjálfun og þróun gervigreindar. Við megum ekki missa af lestinni og sitja á bremsunni þegar kemur að þessum málaflokki.
Því miður hef ég ekki mikið traust til núverandi ríkisstjórnar sem virðist bara vera í nýsköpun þegar kemur að skattpíningu borgarans og sýndi ekki þá framtíðarsýn sem þörf er á í atvinnustefnunni. Ekki heldur til Katrínar Jakobsdóttur sem leiðir gervigreindarmiðstöðina New Nordics AI fyrir okkar hönd og virðist stefna að því að vinna eftir leiðbeiningum ESB. Við þurfum að gera frumkvöðlum hér heima kleift að nýta þessa tækni og ekki standa í vegi þeirra.
Bjartir tímar framundan.























