„Það verður ekki jafn mikill hávaði þegar eitt og eitt ferðaþjónustufyrirtæki fer að loka eða dregst saman í veltu eins og þegar Elkem á Íslandi er undir eða Rio Tinto,“ segir Álfheiður Ágústdóttir, nýr aðstoðarforstjóri Travel Connect.
visir.is/g/20262968562d/-vid…
2
192
Eftir nánast viðvarandi styrkingu um nokkurt skeið hefur gengi krónunnar, einkum gagnvart Bandaríkjadal, veikst eilítið að undanförnu en fátt gefur samt til kynna að hún muni gefa mikið eftir á næstunni, að sögn gjaldeyrismiðlara.
visir.is/g/20262967664d/erfi…
164
Samanlögð markaðshlutdeild smásölusamstæðu Dranga, sem er að meirihluta í eigu SKEL, eftir kaupin á Fjarðarkaup nemur allt að fjórðungi íslenska dagvörumarkaðarins samkvæmt nýjum tölum.
visir.is/g/20262967504d/dran…
2
136
Embætti sérstaks saksóknara gekk „allt of langt“ í ákærum á hendur bankastjórnendum eftir fjármálahrunið og líkur á að utanaðkomandi þrýstingur og óvægin fjölmiðlaumfjöllun hafi haft áhrif á rannsóknir og ákvarðanir um ákærur, segir í nýrri fræðigrein.
visir.is/g/20262966917d/ser-…
1
224
Fjórir lífeyrissjóðir stóðu undir rétt ríflega helmingi þeirrar fjárhæðar sem safnaðist samtals í tilboðsbók ætlaða stærri fjárfestum í nýafstöðnu hlutafjárútboði Bláa lónsins.
visir.is/g/20262965648d/stap…
2
280
Greinendur segja síðasta uppgjör félagsins betra en við fyrstu sýn og að markviss hagræðing, bætt tekjustýring og endurnýjun flugflotans geti skilað kröftugum viðsnúningi í rekstri á næstu árum.
visir.is/g/20262965505d/hag-…
231
„Ég er ekkert með böggum hildar yfir því þótt að það verði 0,3 prósenta halli á ríkissjóði sem hlutfall af landsframleiðslu,“ segir aðalhagfræðingur Kviku banka í nýjum hlaðvarpsþætti Innherja.
visir.is/g/20262965406d/fair…
172
Þátttaka helstu lífeyrissjóða var dræm í nýafstöðnu fjórtán milljarða útboði Bláa lónsins, meðal annars hjá sumum stórum sjóðum sem áttu hlutfallslega lítið í félaginu, og réð það miklu um að ekki tókst að fylla tilboðsbók ætlaða stærri fjárfestum.
visir.is/g/20262964561d/marg…
2
261
Verðlagning Bláa lónsins í nýafstöðnu hlutafjárútboði var of há að mati fjárfestingarstjóra hjá Kviku eignastýringu, sem segir niðurstöðuna einhverja þá mest afgerandi vonbrigði sem hann hafi upplifað við skráningu félags á markað frá fjármálahruni.
visir.is/g/20262964006d/drae…
1
223
Dræm eftirspurn meðal fagfjárfesta í nýafstöðnu fjórtán milljarða hlutafjárútboði Bláa lónsins þýddi að félagið nýtti sér heimild til að stækka talsvert heildarstærð A-bókarinnar, einkum ætluð minni fjárfestum, þannig að hægt yrði að ljúka útboðinu.
visir.is/g/20262963371d/stae…
1
337
Meira segja millistjórnendur þessa heims gera sér grein fyrir því að ferðamenn hafa val. Þeir geta skoðað aðra staði, stytt dvölina eða einfaldlega sleppt því að koma. Það þarf því ekki hagfræðimenntun til að átta sig á að gjaldtaka hefur áhrif á hegðun.
visir.is/g/20262962646d/verk…
4
342
Danska ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi um umfangsmiklar skattalækkanir til að styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins og hvetja til fjárfestinga. Fyrirtækjaskattur verður meðal annars lækkaður úr 22 í 19 prósent.
visir.is/g/20262962270d/dani…
4
176
„Núna ætlum við að taka aðlögun í gegnum vinnumarkaðinn með því að skerða kaupmátt bara þeirra sem missa atvinnuna,“ segir Eggert og bætir við: „Þetta getur orðið mjög sársaukafullt.“
visir.is/g/20262961409d/vara…
237
Verðlagning Bláa Lónsins í fjórtán milljarða útboði er um fimmtungi undir meðaltali erlendra samanburðarfélaga miðað við áætlaðan EBITDA-hagnað á næsta ári, sem byggist á væntingum um talsverðan afkomuvöxt og samlegð vegna kaupa á Arctic Adventures.
visir.is/g/20262959974d/verd…
1
267
"Kannski væri einfaldast að stjórn Landsvirkjunar myndi bara finna sér nýtt orkufyrirtæki í eigu einhvers allt annars almennings og héldi óbreyttum stjórnarháttum áfram þar."
visir.is/g/20262959648d/al-m…
3
594
"Tækifærið á næsta ári til að koma böndum á verðbólguna kann að verða síðasta skotið í byssunni í bili. Þessu tækifæri má ekki klúðra."
visir.is/g/20262958739d/-sid…
3
419
Tveir af stofnendum Visku sjóða, þeir Daði Kristjánsson og Guðlaugur Steinarr Gíslason, hafa keypt út fjóra aðra hluthafa sjóðastýringarfélagsins og fara nú saman með allt hlutafé þess.
visir.is/g/20262957842d/dadi…
2
380
"Ef grafið er undan trúverðugleika tilnefningarnefnda má búast við því að hluthafar, sem bera ábyrgð á kjöri stjórnar, leggi minna upp úr tillögum nefndanna og leiti þá annarra leiða við mat á frambjóðendum til stjórna og ákvörðun um ráðstöfun atkvæða."
visir.is/g/20262957753d/doma…
1
159
Með breytingunni á vaxtaviðmiði verður mat á lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs í auknum mæli tengt þróun á skuldabréfamarkaði. Það getur haft umtalsverð áhrif á bókfærða eiginfjárstöðu ríkisins milli ára,
visir.is/g/20262957286d/brey…
1
105
Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík hyggst ráðast í hlutafjáraukningu upp á að lágmarki fjórtán milljarða króna fyrir áramót sem er forsenda þess að samkomulag við lánveitendur um langtímafjármögnun geti tekið gildi
visir.is/g/20262955894d/kald…
124
